Language
  • International
  • Svenska
  • Norsk
  • Suomi
  • Finlandssvenska
  • Dansk
  • Íslensk
  • Eesti keel
  • Latviešu valoda
MEPS
Felligluggi
Loka
Hagkvæmt samstarf
og ítarlegir útreikningar

Vinnið á skilvirkan og hagkvæman hátt við byggingarþjónustu, endurbætur og viðgerðir

Í MEPS kerfinu eru verktakar, fasteignafélög og tryggingafélög í samstarfi um verkefni sem snúa að endurbótum og viðgerðum á fasteignum. MEPS er þekktasta kerfi markaðarins og er notað til að gera samninga, reikna út, spjalla og skjalfesta. Allt gerist á einum stað. Með MEPS færðu stjórn á rekstrinum og getur aukið skilvirkni og arðsemi.

MEPS er notað skipulags og stjórnunar vegna viðhalds og viðgerða hjá fasteignafélögum, tryggingafélögum og einstaklingum.

Vefbundið kerfi

Þar sem MEPS er á vefnum hefurðu alltaf aðgang að nýjustu útgáfunni. Þú þarft ekki að hlaða niður eða setja upp neitt. MEPS er hægt að nota á tölvu, fartölvu, spjaldtölvu og farsíma. Þannig geturðu skráð starfið á skrifstofunni sem og með farsímanum þínum á vettvangi.

MEPS fyrir ólíka verkþætti

Lestu um hvernig MEPS er notað í þinni tegund fyrirtækis.

Välj målgrupp

MEPS fyrir aðalverktaka

MEPS er bæði reiknivél og þjónustukerfi vegna bygginga sem hjálpar þér að tæknivæða og einfalda vinnudaginn. Fáðu uppbyggingu í áframhaldandi verkefnum, einföld og rekjanleg samskipti við undirverktaka sem einfalda tilboðsvinnuna.

Händer lägger golv

Stöðugt flæði pantana

MEPS auðveldar þér að fá ný verkefni - þú ert í langtíma-samstarfi við viðskiptavini þína og færð stöðugt flæði pantana. Leiðandi tryggingafélög í Svíþjóð eru með MEPS sem staðlað kerfi fyrir tjónamál fasteigna, sem gefur þér sem MEPS notanda samkeppnisforskot. Sama á við um verkefni frá fasteignafélögum þar sem æ fleiri krefjast þess að MEPS verði notað af sínum verktökum. MEPS virkar frábærlega í einkaframkvæmdum - einstaklingar kunna venjulega að meta skýrt framsettar skýrslur.

Fáðu greitt fyrir það sem þú framkvæmir

Með MEPS þarftu ekki lengur að vinna með áframhaldandi, óvissa útreikninga. Þess í stað færðu greitt fyrir hvern verkþátt sem þú framkvæmir, ekki tímann sem það tekur að klára verkið. MEPS skilar mældum verkeiningum sem ákvarða vinnumagnið og þú færð greitt í samræmi við samninginn sem þú hefur gert við viðskiptavininn. Þú þarft ekki að eyða óþarfa tíma í verðviðræður og getur unnið, skilvirkt og aukið þína arðsemi.

Einfaldara samstarf við undirverktaka

Hægt er að eiga hnökralaus samskipti við undirverktaka og iðnaðarmenn sem vinna í greininni. Deildu verkefnum, spjallaðu og safnaðu gögnum um verkefnið á einn stað þar sem allir aðilar hafa aðgang að því.

Greining á fyrri verkefnum

MEPS birtir gögn sem gefa möguleika á greiningu og eftirfylgni fyrri verkefna. Þannig sérð þú afkomu þína og hvar hægt er að skipuleggja betur til auka frekari skilvirkni.

Vefbundið kerfi

Þar sem MEPS er á vefnum hefurðu alltaf aðgang að nýjustu útgáfunni. Þú þarft ekki að hlaða niður eða setja upp neitt. MEPS er hægt að nota í tölvu, fartölvu, spjaldtölvu og farsíma. Þú getur því skjalfest vinnuna á skrifstofunni jafn vel og með farsímann úti á vettvangi.

Ókeypis prufuáskrift og hjálp að byrja

Fyrstu þrjá mánuðina geturðu notað MEPS þér að kostnaðarlausu. Þú munt einnig fá kynningu á MEPS af fróðum vörusérfræðingum okkar. Kynningin fer fram í gegnum síma eða á netinu og þú bókar hana á sama tíma og þú leggur inn pöntun fyrir prufutímann. Þú færð líka aðgang að kynningarmyndböndum sem sýna hvernig þú getur byrjað fljótt með MEPS.

Þú pantar prufutímabilið í gegnum Panta MEPS hnappinn á þessari síðu. Fyrstu þrír mánuðirnir eru ókeypis. Eftir það velur þú sjálfur hvort þú vilt segja samningnum upp.

MEPS Verðslisti 2024

Grunnkerfi

ISK

Árgjald MEPS¹

259 600

Árgjald hvers notenda

33 000

Árgjald hvers handverksmann

18 900

Skýrslugjald á hvert tjón²

940

Skýrslugjald á hvert tjónamat

0

Skýrslugjald á hvern fasteignastjóra

0

Skýrslugjald á hvern einkaaðila

0

Skýrslugjald á Floor Plan Creator³

530

Árgjald á hvert "dóttur"félag⁴

46 200

Öll verð eru án VSK.


¹Innifalið hjá notenda.

²Kostnaður reiknast þegar verkefni er samþykkt af tryggingafélagi

³Kostnaður reiknast þegar verkefni er stofnað í Floor plan creator
⁴Viðskiptaeining er notuð af stærri fyrirtækjum sem þurfa að stjórna nokkrum deildum, dótturfyrirtækjum eða vörumerkjum í sama kerfi.






MEPS fyrir ólíka verkþætti

Lestu um hvernig MEPS er notað í þinni tegund fyrirtækis.

Huvudentreprenör

Öka lönsamheten med kalkyl- och byggservicesystemet MEPS. Få struktur i pågående projekt, kommunicera smidigt med underentreprenörer och förenkla offertarbetet.

Underentreprenör och Installatör

Få koll på dina kostnader, slipp prisdiskussioner och öka lönsamheten. MEPS hjälper dig att styra din ekonomi med säkra kalkyler och effektiva samarbeten.

Fukt & Sanering

Med MEPS får du ett verktyg för snabb kommunikation, besiktning och tydlig dokumentation av skadan gentemot beställaren.

Fastighetsbolag

MEPS hjälper fastighetsbolag att digitalisera och effektivisera entreprenadsprocessen – från start till mål.

Försäkringsbolag

MEPS är det ledande systemet när det kommer till hantering av byggskadeärenden och används av alla större försäkringsbolag i Sverige och ett växande antal i Norden.

© Copyright 2024 CAB Group